Óskarsverðlaunin fara fram í kvöld og ég er orðin mjög spennt að fylgjast með rauða dreglinum, kjólunum og förðuninni á skvísunum í Hollywood!
Hér er mjög skemmtileg teikning sem sýnir kjólana sem allar þær leikkonur sem hafa sigrað í flokknum Besta Leikkonan hafa klæðst á hátíðinni.Það er dáldið gaman að renna yfir þessa mynd og rifja upp í leiðinni þessa fallegu kjóla. Mér finnst líka ótrúlegt að hugsa hvað tíminn er fljótur að líða mér fannst Kate Winslet vinna sína styttu bara í hitt í fyrra… :)
Kjóllinn sem ég er þó spenntust að sjá er kjóllinn sem Lupita mun klæðast. Að mínu mati hefur hún borið af í klæðnaði á verðlaunahátíðunum í ár!
Hvaða kjól eruð þið spenntastar fyrir?
EH
Skrifa Innlegg