fbpx

Diskurinn sem bjargar mér

Lífið MittTinni & Tumi

001

Þegar sonurinn kom í heiminn fengum við alls konar fallegar sængurgjafir frá fjölskyldu og vinum. Ein af þessum gjöfum frá yndislegri vinkonu innihélt þennan geisladisk sem inniheldur Vögguvísur bæði gamlar og þekktar auk nýrra. Lögin á plötunni eru öll sungin og spiluð af söngkonunni Hafdísi Huld.

Vinkona mín hafði fengið hann sjálf að gjöf þegar hún átti dóttur sína og mælti með því að við værum með hann í bílnum því hann hefði alltaf róandi áhrif á dóttur sína þegar hún var óróleg í bílnum. Svo ég gerði það og frá því að Tinni var nokkra vikna höfum við hlustað saman á þennan disk saman í bílnum. Hann hefur svo róandi áhrif á hann og yfirleitt sofnar hann innan nokkra mínútna. Það er eins og hann viti það bara að þegar það kviknar á disknum þá á hann að slaka á.

Ef ykkur vantar hugmyndir að sængugjöfum já eða leiðir til að róa börn í bíl þá mæli ég hiklaust með þessum disk. Mér finnst hann líka alveg yndislegur og það er róandi að hlusta á hann svo syng ég líka mikið með honum fyrir Tinna Snæ.

EH

Sunnudagsmogginn

Skrifa Innlegg