fbpx

Chanel neglur

ChanelmakeupneglurNýtt í snyrtibuddunni minni

Ég fékk nýlega í hendurnar vörur úr haustlínu Chanel. Haustlínan er ofboðslega falleg og ég sýni ykkur förðunarlúkk með vörunum seinna í vikunni. En mig langaði að byrja á því að sína ykkur naglalakkið.

Lengi hefur merkið ákveðið naglalakkatískuna og ég man sérstaklega vel eftir því að það var eitt af fyrstu merkjunum sem bauð okkur íslenskum konum uppá svart naglalakk. Liturinn sem ég prófaði er dökkur khaki litur sem er fullkominn fyrir haustið. Liturinn heitir Mysterious.

Gabrielle var mjög hjátrúarfull kona og þaðan kemur innblásturinn fyrir línuna. Hér sjáið þið örstutt video sem inniheldur vörurnar úr línunni – horfið á það til að hita upp fyrir förðunarlúkkið;)

EH

Nýstárleg form hjá Victoriu Beckham

Skrifa Innlegg