fbpx

Bleikar Ombre Varir

Ég elska ombre varir – ef ég hef ekki sagt það nógu oft – og ég notaði kvöldið til að prófa að gera einar bleikar á milli þess sem ég prófaði nýju Sleek palletturnar mínar:) Hér sjáið þið árangurinn:Fyrst byrjaði ég á því að gera þær ljósastar yst og dekkstar innst. Ég byrjaði á því að grunna varirnar með hvítum eyeliner og  svo setti ég smám saman sterkari bleikan lit og nuddaði vörunum létt saman til að dreifa úr litnum svo skilin yrðu mýkri.Í seinna skiptið ákvað ég svo að þær væru dekkstar efst og svo smám saman lýstust þær – gerði þær alveg eins og fyrir ofan nema nú byrjaði ég á dekksta litnum og færði mig útí ljósari.

Fullkomnar varir fyrir kvöldið á morgun – eða Airwaves sem styttist sífellt í!!

EH

Óléttu Innblástur

Skrifa Innlegg