fbpx

Barnalán

Þið sem eigið börn – líður ykkur ekki stundum eins og lífið hafi bara byrjað þegar þið fenguð barnið ykkar í fangið?

Þannig líður mér og þessa dagana vil ég helst ekkert fara án litla molans míns og uppáhalds fylgihluturinn er barnavagninn og skiptitaskan er taskan mín. Svona rölti ég um bæinn í fallega kalda veðrinu á laugardaginn.

Kápa: Farmers Market
Trefill: Vík Prjónsdóttir
Buxur: Zara
Skór: Nike Free #trendnike
Barnavagn: Recaro
Teppi: frá ömmu Þóru

EH

J'adore Dior*

Skrifa Innlegg

2 Skilaboð

  1. Kristín Björg

    14. April 2013

    Ohhhh – maður fylgdist sko með þessu teppi verða til í kaffi og matartímunum á US….knús á Tinna og þú mátt gjarnan koma bráðum og sýna okkur hann aftur….sá hefur stækkað

    • já við Tinni erum svo hrifin af þessu teppi – það fær líka að fara allt með okkur og allir dást að því:):) Við Tinni lofum að kíkja í heimsókn fljótlega skulum bara stefna á að mæta í vikunni;)