fbpx

Afmælisglaðningur frá Trendnet…

Þó að afmælisdagur Trendnets sé að kveldi kominn þá erum við ennþá í gjafastuði. Ég ætla ekki bara að gefa heppnum lesendum fríar farðanir heldur líka fegurðarglaðninga!

Við erum búin að vera á fullu í dag að gefa lesendum glaðninga hvort sem það eru þeir sem eru duglegir að kommenta, fylgjast með okkur á Facebook og merkja #trendnet á Instagram. Ég ákvað að renna yfir Instagram myndirnar og valdi 2 sem mér fannst dáldið skemmtilegar:)

Þessi mynd tók þátt í #trendvarir leiknum okkar og eigandi hennar er elinasbjarnar. Það var ekki bara myndin sem mér fannst skemmtileg heldur líka textinn sem fylgdi með, smile is the best accessory – ég gæti ekki verið meira sammála! Í verðlaun fær Elín gjafapoka með maskaragjafaöskju frá Maybelline sem inniheldur One by One maskarann og svartan eyelinerblýant í pokanum er líka sumarlegt nagalalakk úr Colorshow naglalakkalínunni frá Maybelline og flottar All Colors sokkabuxur frá Oroblu.

Seinni sigurvegarinn er eigandi þessarar myndar,Eigandi þessara sumarlegu Íslandsblóma er @sarasigurlas – myndin fangaði mína athygli strax og þessir fallegu litir eru svo flottir saman! Sara fær í verðlaun litun og plokkun á snyrtistofunni Bonita og létt höfuðnudd – ég væri sko alveg til í þanni, æðislegt að fara í smá dekur :)

Það borgar sig svo sannarlega að merkja trendmómentin á Instagram með #trendnet ;)

EH

Hring eftir Hring

Skrifa Innlegg

2 Skilaboð

  1. Elín Ásbjarnardóttir Strandberg

    11. August 2013

    Takk kærlega fyrir mig!! :) þú og þið öll gerið net-hringinn svo miklu skemmtilegri.