Eins og þið hafið vafalaust séð hér á síðunni minni þá áttum við unnustinn sambandsafmæli á miðvikudaginn og því var fagnað með stæl! Við byrjuðum kvöldið á Sushisamba – fengum okkur kaffibolla á Te & Kaffi og fórum svo í nýju ísbúðina útá Granda sem ber nafnið Valdís – mæli hiklaust með henni.
Kjóll: Spúútnik
Jakki: Vero Moda
Sokkabuxur: Just Different, Oroblu
Skór: H&M
Varalitur: Color Sensational Vivids Pink Pop nr 900 frá Maybelline – fæst HÉR á 20% afslætti!
Við fengum okkur að sjálfsögðu sushi – Spicy Kjúklingur og Surf & Turf.
Ég fékk mér 2 kúlur í Valdísi – eina lakkrís og aðra hindberja – vöffluformin eru bökuð á staðnum og eru ljúffeng!
Hvet ykkur öll til að fara í ísbíltúr útá Granda í kvöld:D
EH
Skrifa Innlegg