fbpx

Æðislegar Neglur

Lífið Mittlorealneglur

Á laugardaginn sat ég í dómnefnd ásamt öðru frábæru fólki í Meistarakeppni íslenskra naglafræðinga. Þetta var allt saman voðalega nýtt fyrir mér að sitja og dæma hvað var flott – en þetta hófst á endanum hjá mér:) Þetta var virkilega skemmtileg reynsla og ég skemmti mér mjög vel. Keppnin skiptist í tvo flokka annars vegar var það naglafilmukeppni þar sem keppendur notuðu filmurnar frá L’Oreal og svo var það fantasíu naglakeppni – neglurnar sem ég sá í þeim hluta voru sko sannkölluð listaverk! Keppnin fór fram í höfuðstöðvum Fashion Academy.

Það var svo gaman að sjá sköpunargleðina hjá keppendunum – hér sjáið þið brot af því sem fór fram.

Rétt áður en við dæmdum í naglafilmukeppninni.Í filmukeppninni vorum við meðal annars að skoða hvernig filmurnar voru settar á – þær þurftu að vera alveg uppvið neglurnar – eins og þær væru naglalakk.Hér erum við byrjuð að dæma í fantasíukeppninni.Eitt af því sem við dæmdum var förðun keppendanna – þar var ég í essinu mínu.Hér sjáið þið neglurnar sem lentu í þriðja sæti.Hér sjáið þið neglurnar sem voru í öðru sæti.Verðlaunin voru í keppninni voru í boði L’Oreal og þau voru ekki af verri endanum en sú sem sigraði í keppninni fékk vörur frá merkinu fyrir 100.000kr – meðal þeirra voru 52 naglalökk!Svo sjáið þið neglurnar sem sigruðu í keppninni – vá hvað mér fannst þær flottar – mig langar í svona!Hér sjáið þið sigurvegarann Catherine Coté ásamt fína módelinu sínu henni Alexöndru Ósk.Ég var ótrúlega skotin í makeup-inu – Catherine gerði þetta ótrúlega flotta, beina og nákvæma munstur fríhendis – líka á nöglunum!

Catherine sem sigraði heldur úti Facebook síðunni Rainbow Nails hún er einstaklega hæfileikarík og þið finnið meðal annars umfjöllun um hana og neglurnar hennar í nýjasta tölublaði Nýs Lífs.

EH

Dream Team!

Skrifa Innlegg

Skilaboð 1

  1. Elísabet Gunnars

    7. May 2013

    EN GAMAN !! x