fbpx

4. tbl af Reykjavík Makeup Journal!

Ég Mæli MeðLífið MittMakeup ArtistReykjavík Makeup Journal

Þá er fjórða tölublað Reykjavík Makeup Journal komið út og ritstjórinn hamingjusamari enn nokkru sinni fyr. Blaðið er miklu veglegra en síðast en það er með kjöl og pappírinn er þéttari og flottari og mér finnst mun betri heildarmynd yfir blaðinu. Ég get með sanni sagt að ég hafi lært helling af síðasta blaði og þó það sé að koma alltaf út þá veit ég að ég get alltaf betrumbætt það en ég verð að segja að ég er rosalega stolt af þessu blaði og ég vona að ykkur lítist vel á það.

Blaðið bíður ykkar nú FRÍTT í öllum verslunum Hagkaupa og að því tilefni eru Tax Free dagar í snyrtivörudeild Hagkaupa 12.-16. febrúar. Ég hvet ykkur endilega til að nýta ykkur afsláttinn en búðin er nú að fyllast af æðislegum nýjum vörum og auðvitað eru til fyrir virkilega flottar vörur. Ég ætla að setja saman færslu á morgun með lista yfir vörur sem ég mæli með að þið tryggið ykkur á góðum afslætti. Ef þið hafið ekki tök á að komast í Hagkaup og ná ykkur í blað þá getið þið haft samband við verslunina og fengið það sent til ykkar.

Mig langaði svona aðeins að segja ykkur frá blaðinu og því sem þið finnið þar. Fókusinn í blaðinu er húðin og það er klárlega þemað í gegnum blaðið þó ég reyni svona aðeins að hrista uppí því með viðtölum og skemmtilegu efni.

rmjblað10

Á forsíðunni sjáið þið eina af mínum bestu vinkonum leiklistarnemann Írisi Tönju, þessi verður stjarna í framtíðinni það leikur enginn vafi á því. Ég plataði hana til að sitja fyrir í myndaþætti inní blaðinu sem sýnir nokkra æðislega andlitsmaska. Hún sagði mér að eftir myndatökuna hafði húðin hennar aldrei litið ver út – hún hreinsaði sig svo svakalega og rosaleg óhreinindi komu uppá yfirborðið. Nokkrum dögum seinna hafði hún þó aldrei litið  betur út því hún var tandurhrein – mér fannst þetta mjög skemmtilegt og sagði mér að þessir maskar svínvirka þó það sé mögulega ekki besta hugmynd í heimi að nota þá alla í einu.

rmjblað9

Ég bætti inní skemmtilegum fréttum úr bjútíheiminum eins og ráðningu Lisu Eldridge hjá Lancome.

rmjblað8

Greinin um vorlínurnar var ein af þeim sem ég skemmti mér mest að skrifa því ég elska að lesa um innblásturinn og þemað í gegnum línurnar. Uppsetningin finnst mér líka svakalega flott og það er flott heildarlúkk yfir þessari umfjöllun.

rmjblað7

Í blaðinu finnið þið viðtöl við lykilstarfsmenn þriggja íslenskra snyrtivörurmerkja, Blue Lagoon, EGF og Sóley Organics. Mín uppáhalds íslensku merki og mér finnst alltaf gaman þegar ég fæ að vera forvitin og fá meiri upplýsingar. Vörur þessara merkja eru klárlega vörur sem allir verða að kíkja betur á.

rmjblað5

Ég plataði hina yndislegu Steffí á femme.is til að sitja fyrir svörum í bjútíbloggaraviðtali. Hún Steffí er ný hjá femme.is og er með skemmtilegar færslur sem þið þurfið endilega að kíkja á, hana finnið þið HÉR. Ég sé að hún er líka búin að birta viðtalið hjá sér – Takk fyrir falleg orð elsku Steffí****

rmjblað3

Hér sjáið þið brit af myndaþættinum – tveir alveg stórkostlegir maskar hér á ferðinni. Ég er búin að prófa þá alla sem eru í blaðinu og ég valdi þá af mikilli kostgæfni.

rmjblað4

Hér sjáið þið einn af mínum uppáhalds liðum í blaðinu en það er hin einstaka, frábæra og yndislega Eva Laufey sem gerði girnilegar uppskriftir af heimagerðum andlitsmöskum. Allt er þetta hráefni sem ætti a finnast í mörgum eldhúsum lanfdsins og maskarnir eru svo girnilegir að mann langar nánast að borða þá!

rmjblað2

Mér finnst sjálfri alltaf skemmtilegra af því að skoða myndir sem eru teknar sérstaklega fyrir blöð en ekki bara vörumyndir. Ég ákvað því að hafa fullt af skemmtilegum myndum. Bæði eru hópmyndir í blaðinu og stakar vörur þar sem ég valdi vörur sem mér fannst hæfa blaðinu og hér eru bæði góðar vörur sem voru til fyrir í bland við nýjungar.

rmjblað6

Ein af þeim umfjöllunum sem ég átti erfiðast með að klára var þessi fyrir aldurinn. Það er svo mikið í boði og það var nánast ógerlegt fyrir mig að velja á milli æðislegra vara sem fást hér á landi.

rmjblað

Ómissandi partur af blaðinu eru umfjallanir um nýjungar. Það eru nýjungar frá flestöllum merkjum í blaðinu og alltaf heilla ilmvötnin mig mest – mér finnst þessi opna með þeim fallegri í blaðinu!!

rmjblað11

Þetta er góður dagur – ég vaknaði hress í morgun ótrúlega spennt að sjá nýjasta afkvæmið og ég er svo sannarlega spennt fyrir því að hefja vinnu fyrir næsta blað.

Nælið ykkur endilega í eintak sem fyrst áður en þau klárast – það er fullt af efni og ég fékk fullt af æðislegu fólki til að hjálpa mér við skrifin og ég er þeim ótrúlega þakklát þetta eru allt eintómir snillingar!

Ef þið getið ekki beðið eftir að komast í Hagkaup eða eruð búsett erlenids þá finnið þið blaðið líka hér…

4. TBL REYKJAVÍK MAKEUP JOURNAL 

EH

Fyrir & eftir með Diorskin Nude Air

Skrifa Innlegg

Hætta við svar

6 Skilaboð

  1. Sæunn

    12. February 2015

    Ég renndi yfir þetta í vinnunni en hlakka til að lesa, lofar mjög góðu. Ótrúlega hamingjusöm með Tax free dagana, býð eftir færslunni áður en ég fer að versla. Einn af þessum mánuðum sem allt kláraðist í einu, gott fyrir budduna ;)

    Ég er með olíumikla húð og stórar svitaholur á ákveðnum stöðum en samt með alveg ofboðslega þurra húð líka, er oft í vandræðum með T svæðið og ennið yfir höfuð því ég er svo þurr. Manstu í flýti eftir einhverjum farða sem þurrkar ekki húðina, má alveg kosta eitthvað!? Loréal Lumi td virkar alls ekki fyrir mig.

    • Reykjavík Fashion Journal

      12. February 2015

      Ég myndi endilega skoða þá undirstöðu vörur eins og Pore Minimizing primerinn frá Smashbox eða Blur kremið frá Garnier en báðar vörur matta húðina, gera fullkominn grunn, minnka sýnileika svitaholna og blurra eiginlega áferð húðarinnar svo hún verður fullkomin – þeir eru báðir æðislegir og ég nota báða mikið :)

      Diorskin Nude Air Serum farðinn er svo gjörsamlega stórkostlegur og sá farði sem ég er nýbúin að prófa, hann leitast við að næra húðina. Ég skrifaði um hann fyrr í dag svo endilega kíktu á hann. Serum farðinn frá bareMinerals er líka æðislegur og hann er ágætlega svipaður þeim nýja frá Dior báðir eru virkilega næringarríkir og leitast við að koma góðu jafnvægi á húðina meðan þeir fullkomna áferð þeirra :)

      • Sæunn

        13. February 2015

        Takk fyrir þetta! Sú færsla hefur farið fram hjá mér og ég sem þykist fylgjast með öllu sem þú setur inn.

  2. Helgi Ómars

    12. February 2015

    Snillingur með meiru, enn og aftur til hamingju <3

  3. Íris Björk

    13. February 2015

    Snillingur til hamingju með nýja blaðið !!! :) ég læt mömmu taka eintak fyrir mig svo ég geti skoðað við fyrsta tækifæri.

  4. Karen Andrea

    14. February 2015

    Jeij, svo glöð að það sé líka á netinu fyrir utanbæjartúttur eins og mig, ætlaði samt bara að senda einhvern í Hagkaup fyrir mig hehe, til hamingju með flott blað :)