fbpx

3.1 Philip Lim – töff & sjálfstæð kona

FallegtFashionTrend

Ég sá að tískuspekúlantarnir sem ég fylgist með á Instagram voru að missa sig yfir Philip Lim svo ég var mjög spennt að komast heim eftir mataboð til að sjá hvað hönnuðurinn biði uppá. Ég varð ekki fyrir vonbrigðum.

Það sem vakti mesta hrifningu hjá mér voru hvernig fyrirsæturnar voru í lögum af þykkum, flottum fötum. Þetta er trend sem ég þarf að reyna að eigna mér betur, ég kann þetta ekki alveg en ég að finna tíma til að æfa mig fyrir næsta vetur áður en sumarið gengur í garð. Jakkarnir og kápurnar bera samt af þegar kemur að flíkunum sjálfum. Ef ég reyni að hugsa eins og dómararnir í Project Runway og reyni að sjá fyrir mér hvernig kona myndi klæðast þessum fötum þá væri það töff, sjálfstæð kona sem lætur ekki álit annarra hafa áhrif á klæðaburðinn.

Fylgihlutirnir léku líka stórt hlutverk en fyrirsæturnar voru flestar annað hvort með stóra og mikla eyrnalokka eða kringlótt sólgleraugu. Áberandi eyrnalokkar voru líka áberandi trend fyrir næsta sumar skv. síðustu tíksuvikum.

Virkilega flott frá Philip Lim – finnst ykkur ekki?

EH

Dior - Chérie Bow

Skrifa Innlegg

2 Skilaboð