fbpx

REGGÍ HÁTÍÐ Í GAMLA BÍÓ –

Fyrir nokkrum mánuðum fékk ástmaðurinn smá þráhyggju fyrir reggí. Í mánuð eða tvo  var ekkert spilað nema reggí.. eðlilega smitaðist ég af bakteríunni.

Ég sá svo að Gamla Bíó hefur efnt til Reggí dags þann 30.ágúst í tilefni af komu Rocky Dawuni til Íslands.

Það verða bæði barna og fjölskyldutónleikar (Frítt fyrir 10 ára & yngri!) á sunnudeginum sjálfum með Amabadama  og svo hita þau upp um kvöldið fyrir Rocky Dawuni.

Rocky er ekki aðeins virtur tónlistarmaður, heldur hefur hann unnið mikið í mannréttindamálum meðal annars verið talsmaður fyrir Unicef & Carter Center.

Þessi tvö hér & hér eru uppáhalds lögin mín með honum –

Hlakka mikið til!

x hilrag.

fyrir áhugasama er hægt að kaupa miða hér 

26 / 08

Skrifa Innlegg