Ég var í smá vandræðum með hvað ég ætti að blogga og þá kom þessi stórkostlega hugmynd að sjá hvað væri í snyrtitöskunni minni.. Hope you enjoy!
Andlitskremið
þegar húðin er með vesen – snilldin ein úr Boots.
þegar húðin er með enþá meira vesen – þetta er í alvörunni eins og að setja sýru í fésið á sér. En virkar!
Benefit – “to minimise the appearance of pores”
Brightening face primer frá Benefit
ég keypti þetta þegar ég var í London um daginn og þetta er eiginlega algjör snilld!
Þessi YSL felari er minn besti vinur – hann kláraðist nýlega og það ríkir hálfgert neyðarástand.
The Rocket volum’ express maskari frá Maybelline – Fékk þennan um daginn – ást við fyrstu sýn!
Þar sem ég virðist ómögulega geta lært að setja á mig augnskugga eða svarta línu án þess að lita út eins og járnbrautaslys hef ég verið að nota þennan blýant frá Gosh í fallegum aqua bláum lit!
Keypti þennan maskara í The Other stories þegar ég var í London – er bún að nota hann 3x og fíla hann hrikalega vel!
Þessi snilldar vara er frá Benefit og fyrir mér algjör nauðsyn að eiga – litur á kinnar & varir.
High Beam highlighter frá Benefit – þegar ég er að fara eitthvað fínt!
Tvær uppáhaldsvörurnar mínar frá Bed Head – Afterparty fyrir silkismooth&glansandi hár og Manipulator svo það haldist á réttum stað!
ég hef ekki litað á mér augabrúnirnar síðan árið 2011 svo ég nota alltaf bara eyebrow liner frá H&M, hehe.
Ég er mikil basic manneskja held ég þegar það kemur að snyrtivörum, ég hef enga þolinmæði í eitthvað flókið og tímafrekt eins og það væri stundum skemmtilegt!
x hilrag.
Skrifa Innlegg