fbpx

FAUX PAS?

ég er lengi vel búin að vera spá í þessum stigvélum frá Givenchy – allar helstu fashionisturnar og celebs hafa sést í þessum stigvélum. Allir að missa sig yfir þessu á öllum bloggum..

Ég veit að stíll er persónubundin og skoðanir auðvitað mismunandi en mér (persónulega)  finnst þetta það allra ljótasta sem ég hef séð. Er ég ein að misskilja lífið eða er þetta einfaldlega svona vinsælt útaf því að þetta er Givenchy? Þau kosta ekki nema litlar 267.644kr.

Hvað segið þið?  Trés chic or faux pas? Mér þætti mjög gaman að vita! :)

x hilrag.

ps. ég ætla alls ekki að leggja það í vana minn að nöldra yfir einhverju svona – langaði bara svo rosalega að vita hvað ykkur finnst. haha

 

 

SPORTY

Skrifa Innlegg

15 Skilaboð

  1. Lína

    28. October 2012

    Ég er alveg sammála þér! Finnst þetta horbjóður, og hreinlega óskiljanlegt að stjörnunar séu að missa sig yfir þessum skóm! Reiðstígvél eru flottari en þetta hahahahah :)

  2. Reykjavík Fashion Journal

    28. October 2012

    mmmm…. ég veit ekki með þessi stígvél – eh sem mér finnst skrítið við þau en samt eh sem er að heilla mig en þau fara alls ekki öllum finnst að hún Kim okkar ætti bara að setja sín inní skáp…;)

  3. Sæunn

    28. October 2012

    Mér finnst þau alveg ótrúlega ljót.

  4. Anna

    28. October 2012

    vibbi!

  5. Helgi Ómarsson

    28. October 2012

    Þykir þetta ekkert flott!

  6. Eyrún

    28. October 2012

    Sammála! Mjög ljótt.

  7. Pattra's

    28. October 2012

    Hrikalegt! Hún Kimmy ætti nú bara að kveikja í sínar.. hahah

  8. Adda

    28. October 2012

    vá! ég hélt ég væri ein um að finnast þetta! ég skil ekki þessi stígvél, samt eru aaaallar píurnar í þeim! finnst þau bara ekki passa við neitt, og þá sérstaklega ekki hnésíðan kjól! faux pas!

  9. Linda

    28. October 2012

    Ég er alveg sammála, finnst þetta hræðilega ljótt.

  10. Halla

    28. October 2012

    Ekki fallegt. Vona að kvenfók í minni fjölskyldu detti ekki í hug að fá sér slíkan skófatnað. Annars veit maður aldrei.

  11. Karen

    28. October 2012

    Faux Pas especially a Kim, modelin komast upp med ymislegt samt ;) xxx

  12. Valdís

    28. October 2012

    Já ég er einmitt búin að pæla miiiiikið í þessum stígvélum og hef komist að niðurstöðu. Ég gengi einungis í þeim ef ég fengi borgaðar 267.644 kr fyrir það! Hana nú! og já ég skil ekki afhverju fólki finnst þetta svona flott.

  13. Litlir Bleikir Fílar

    29. October 2012

    Æji ég sem var að kaupa mér svona!!
    Ég ætlaði að vera í þeim við stjörnuleggings og american apparelle hettupeysuna mína og setja svo perlufesti á hausinn á mér.
    Nú þarf ég að fara upp og skipta um föt.
    Óréttlátt.
    Mjög óréttlátt.

  14. Sigrún

    29. October 2012

    cankles.. hræðilegt!

  15. Halldóra

    31. October 2012

    Ó svo sammála… Alveg hræðilega ljótt..