fbpx

DENIM DILEMMA

Ég hljóma líklega eins og biluð plata.. En það verður bara að hafa það.

Ég er í stanslausri gallabuxnaleit – ég er alltaf að leita af hinum fullkomnu gallabuxum.

Ekki high waisted, en alls ekki low. Ekki með of mikilli teygju, en heldur ekki alltof stífar. 

Svartar, klassískar dökkbláar og svo milliljósar. Mættu alveg vera með einhverjum götum líka.

Er ég að biðja um of mikið? Ekki finnst mér það.. haha. Hér er samansafn af myndum sem ég var búin að “pinna” niður.

oooog leitin heldur áfram..

x hilrag.

ps. öll tips er vel þegin ;)

 

PARIS FASHION WEEK STREETSTYLE

Skrifa Innlegg

3 Skilaboð

  1. Erla

    30. September 2014

    Mæli með Please gallabuxunum – fást í Evu :)

  2. Agnes

    30. September 2014

    Ég keypti mér svartar skinny miðlungsháar buxur í levi’s í byrjun sumars og er óskaplega ánægð með þær. Mæli með þó þær kosti vissulega meira en t.d. í Zara eða Vero Moda :)

  3. Bogga

    13. October 2014

    Eg mæli hiklaust með Scarlet sniðinu frá Lee- milliháar, passlega þröngar og endast að eilífu! +að lee er eins og instant butt lift!