fbpx

Balance bond

HEALTHLIFESTYLEPERSONAL

ég keypti mér svona í gær í Heilsuhúsinu. Búin að langa að prófa þetta í smá tíma, er samt búin að vera með þetta í einn dag svo það er erfitt að segja hvort ég finn einhvern mun. Er einhver sem á svona eða hefur einhverjar reynslusögur? :)

Hvað er balance bond?

Armböndin sjálf eru framleidd úr sílíkon efni. Í framleiðsluferlinu er rafrænum jónum bætt út í, sem sitja síðan eftir í sílíkoninu.

Jónir eru efnisagnir sem ýmist eru jálvæðar eða neikvæðar og eru allsstaðar í náttúrunni. Þar eru jónirnar í jafnvægi, þar er jafnmikið af neikvæðum og jákvæðum jónum. Aftur á móti eru þær yfirleitt í ójafnvægi í híbýlum manna. Þar er yfirleitt meira af jákvæðum jónum. Kaldhæðnin er sú að neikvæðar jónir hafa yfirleitt betri áhrif á mannslíkamanum en þær jákvæðu.

Meginhlutverk neikvæðra jóna er að auka virkni blóðs í líkamanum og minnka þreytu. Þær jónir geta bætt efnaskipti fruma og aukið náttúrulegan lækningamátt gegn ofnæmi. Jónirnar eiga að auka varnir líkamans gegn sjúkdómum. Neikvæðu jónirnar í armbandinu veikja jákvæðu jónirnar í líkamanum, en þær draga úr virkni efna í mannslíkamanum. Þær neikvæðu styrkja aftur á móti varnarkerfi hans og verja hann þannig gegn áhrifum jákvæðra jóna. ( Upplýs. utilif.is – kostar 1990kr þar og í heilsuhúsinu)

x, hilrag.

ps. hulda halldóra og elísabet alma smekkkonur eru með fatamarkað í kolaportinu – ekki missa af því!

PAMELALOVE A/W11

Skrifa Innlegg

6 Skilaboð

  1. Alda

    11. June 2011

    Alltíeinu eru þvílíkt margir komnir með svona… Og trúa því að þetta hjálpi þeim – En það er einmitt málið! Ég trúi alls ekki að þetta hjálpi manni eitthvað (mín skoðun) en ætli það sé ekki bara hugurinn sem gildi;)

  2. þorbjörg

    11. June 2011

    hvar kaupirðu þetta og hvað kostar það?

  3. hilrag

    11. June 2011

    já Alda, ég veit ekki hvort þetta virkar, en ég hef heyrt frá nokkrum sem eru búin að vera með svona að þau finni fyrir breytingum, en ég held að þetta líka alveg rosalega sálrænt – fannst þetta allavega of spennandi til að prófa ekki.

    þorbjörg ég keypti mitt í heilsuhúsinu á 1990kr.

  4. Steinunn Alda

    11. June 2011

    Enn spennandi!, nú verð ég að redda mér einu stykki! :) .

  5. Guðbjörg Lára

    12. June 2011

    Ég er búin að vera með svona armband í 2 mánuði og ég finn engan svakalegan mun, eiginlega bara engan ef ég á að vera hreinskilin.
    Þetta fæst einnig í flestum apótekum, en ég minn kæró keypti allavega okkar þar. :)

  6. ólöf

    13. June 2011

    ég held þetta sé meira svona placebo dæmi..hjálpi þeim sem trúa að þetta sé að gera eitthvað og þeim sem efast not so much..en hvað veit ég..þú lætur okkur bara vita eftir nokkra daga;)