Einn stór draumur rættist fyrir helgi þegar ég fékk að klæðast þremur stórkostlegum skópörum frá Alexander Wang í smá dress up leik í Sævari Karl um daginn…
Ég tiplaði á tánum um verslunina í þessum gersemum sem fengu því miður ekki að fylgja mér heim en mögulega fá þeir það einhver tíman seinna. Herra Wang kann svo sannarlega að hanna skó sem eru ekki bara sjúklega flottir heldur eru þeir líka ótrúlega þæginlegir.
Þessi támjóu ökklastígvél eru efst á óskalistanum – þau voru plönuð kaup ef ég hefði unnið í lottói um helgina, ég er alveg staðráðin í því að kaupa aftur miða næstu helgi – einhver hlýtur að vinna stóra pottinn afhverju ekki ég ;)
Þó svo að skórnir hafi ekki fengið að fyljga mér heim þá var það önnur flík frá Alexander Wang sem fékk að koma heim með mér – sýni ykkur hana við fyrsta tækifæri ásamt restinni af dressmyndunum sem ég tók í Sævari Karl ;)
EH
Skrifa Innlegg