Mig langaði að sýna ykkur nokkrar girnilegar nýjungar sem voru að rata heim til mín! Þessar vörur ætla ég þó að sýna ykkur betur hér inná síðunni á næstu dögum og jafnvel skella í video umfjallanir og sýnikennslur auðvitað líka;)Ég er húkkt á kremaugnskuggum og ég hoppaði hæð mína þegar ég frétti af þessum frá Bourjois ég er lang spenntust fyrir að prófa þennan í miðjunni. Vínrauður og hátíðlegur þessi er fullkominn með dökkbrúnum litum og ég er mjög spennt að prófa hann og sýna ykkur. Ég hef mikið verið spurð útí rauðtóna augnskugga undanfarið og því eru þessir litir kærkomnir :)Gullfallegt naglalakk frá Bourjois sem smellpassar fyrir hátíðirnar meira innan skamms :)Nýjir maskarar frá Gosh sem eiga að örva hárvöxt augnháranna. Annars vegar sjáið þið þarna maskara og hins vegar eins konar serum fyrir augun eða augnháranæringu sem má nota undir maskara eða bara á hrein augnhár áður en þið farið að sofa á kvöldin. Ég var búin að sjá þennan maskara auglýstan fyr á árinu og er mjög spennt yfir því að fá loksins að prófa hann!Nýjir varalitir frá Boujois sem minna á Chubby Sticks frá Clinique. Þessir henta fullkomlega sem hátíðarvaralitir og þeir verða partur af hátíðarvara umfjölluninni minni í ár. Svo er það þessi nýji maskari frá Bourjois þetta er eitthvað sem ég hef aldrei séð áður og ég verð eiginlega að sýna ykkur hann í video færslu. Það er hægt að snúa uppá burstann svo það má segja að þetta sé maskari með tveimur mismunandi greiðum – ég er vandræðalega spennt yfir því að prófa hann ;)Ég varð að leyfa nýjasta ilminum mínum að fylgja hér með en það virðist eins og að allt sem hún Rihanna okkar komi nálægt þessa dagana verði að gulli! En þessi nýjasti ilmur frá henni Nude er bara virkilega fínn. Þetta er mjög léttur og þæginlegur vanilluilmur sem er samt um leið mjög frísklegur ávaxtailmur. En ég ætla að segja ykkur betur frá honum seinna.
Það er fullt af snyrtivörunýjungum núna í verslunum sem ég hvet ykkur til að kíkja á.
EH
Skrifa Innlegg