Á fallegu fimmtudagskvöldi fórum við kærustuparið á rómantíska tónleika hjá Sinfóníunni þar sem flutt var tónlist úr þekktum kvikmyndum. Mér finnst svo gaman að fara á Sinfóníuna ekki bara til að hlusta á fallega tónlist heldur finnst mér bara líka svo gaman að fylgjast með hljóðfæraleikurunum:)Ég klæddist:
Kjóll: Hugo Boss
Sokkabuxur: Different, Oroblu
Skór: Zara
Hálsmen: Just Female, MAIA
Varalitur: Retro Matte lipstick Relentlessly, MAC
Kjólinn á ég reyndar ekki en mér finnst ég eiga helling í honum. Ég fann hann í Boss outlettinu í Skeifunni fyrir tæpum 4 árum síðan. Ég átti ekki pening til að kaupa hann svo úr varð að tengdamamma mín keypti hann. Um daginn fékk ég hann svo lánaðann og ég er ekkert svo viss um að ég skili honum aftur:)
EH
Skrifa Innlegg