Stundum er ég alltof gleymin – ég t.d. steingleymdi að sýna ykkur frá myndatöku sem ég gerði fyrir smá tíma síðan. Myndatakan var fyrir lookbook fyrir nýja íslenska hönnun.
IIIF er samstarfverkefni tveggja íslenskra fatahönnuða, Agla Stefánsdóttir og Sigrún Halla Unnarsdóttir, og eins fransks vöruhönnuðar, Thiebaut Allgayer. Saman hanna þau vörur, fylgihluti og fatnað. Fyrsta línan þeirra var sýnd núna í ágúst og hér sjáið þið myndirnar af þessari skemmtilegu og nýstárlegu, skemmtilegu hönnun. Sjálf er ég sérstaklega hrifin af hálsmenunum sem eru gerð úr hreindýrahornum – en aðeins þeim sem dýrin missa af sjálfdáðum.
HÉR finnið þið upplýsingar um hönnuðina, vörurnar og hugmyndafræðina á bakvið IIIF.
Ljósmyndari: Magnus Andersen
Förðun og hár: Erna Hrund Hermannsdóttir
Fyrirsæta: Brynja Guðmundsdóttir, Eskimo Models og Gylfi Sigurðsson
Clothing : GK Reykjavík / í eign hönnuða
Myndirnar eru teknar í Listaháskóla Íslands
EH
Skrifa Innlegg