Ein af mínum uppáhalds árlegu söfnunum hefst í næstu viku – Á allra vörum. Á hverju ári velja konurnar þrjár sem standa að baki söfnuninni sér málefni sem þarfnast athygli. Í ár fer söfnunarféð til máls sem hefur því miður fengið að mæta afgangs alltof lengi.
Myndirnar eru fengnar frá Facebook síðu Á allra vörum – HÉR
Ég hef ákveðið að fara í smá samstarf með þeim sem standa að Á allra vörum og ætla að fjalla um söfnunina, málið og að sjálfsögðu fallegu glossin frá Dior sem eru seld til styrktar málinu. Í ár kom ný lína af glossum frá Dior sem inniheldur bæði nýja liti og áferðir og glossin 2 voru valin úr þeirra hópi – þið getið séð úrvalið HÉR.
EH
Skrifa Innlegg