Druslugangan verður haldin þann 25.júlí næstkomandi – kl.14 – labbað frá Hallgrímskirkju, niður Skólavörðustíg, niður Bankastræti og endað á Austurvelli.
“Druslugangan er orðin að föstum punkti í íslensku samfélagi þar sem að samfélagið rís upp gegn kynferðisofbeldi og stendur með þolendum – gegn gerendum. Druslugangan leggur höfuðáherslu á að færa ábyrgð kynferðisglæpa frá þolendum yfir á gerendur. Það er alltof oft þannig að einblínt er á klæðnað, hegðun eða fas þolenda sem afsökun fyrir kynferðisglæpi. Það er ekki til nein afsökun”
Stöndum saman gegn kynferðisofbeldi! Færum skömmina þangað sem hún á heima. Ætlaði að skrifa einhverja langloku en þetta er ekkert rosalega flókið. Mætum í druslugönguna á laugardaginn og sýnum stuðning !!
#druslugangan
x hilrag.
pepp party Druslugöngunnar er í kvöld – þar & í Jör td er hægt að kaupa Drusluvarning!
Skrifa Innlegg