Þegar það er nóg að gera annars staðar í lífinu og maður hefur fengið svona góðlátlegar vísbendingar frá líkamanum um að slaka á (halló samdrættir) þá hef ég ekki alveg jafn mikinn tíma til að sinna blogginu. Ég vona að þið fyrirgefið mér það – sem ég efast þó ekki um því ég á svo yndislega lesendur. Þó ég detti héðan út reyni ég að vera virk annars staðar þar sem það tekur kannski aðeins styttri tíma.
Bæði er ég að komast á fullt inná Snapchatrásinni minni – ernahrundrfj – þar er öllum velkomið að fylgjast með. Auk þess tek ég góðar skorpur á Instagram fylgið mér endilega @ernahrund.
Mig langar að deila með ykkur nokkrum góðum augnablikum af Instagram í dag….
Ég held því fram að ég sofi betur í fallegu múmínnáttbuxunum mínum og kvöldkaffibolli er nauðsynlegur partur af kvöldrútínunni minni.
Ég er ástfangin af nýja Complexion Rescue kreminu frá bareMinerals. Þetta er það sem ég nota á hverjum degi á hreina og rakanærða húð – og ekkert annað venjulega.
Góður morgunbolli og Lilacism frá Essie.
Fallegastur mömmu sín verður heimsins besti stóri bróðir það er ég viss um.
Þrjár góðar í Hafnafirði.
Glæsilegar vörur úr væntanlegri línu frá MAC – Wash & Dry línan er alveg að koma. Ég lofa að sýna ykkur þessar betur um leið og ég veit hvenær þær koma í búðir :)
Glæsilegar nýjar vörur fyrir hann frá Dior Homme. Ég er bara yfir mig ástfangin af útliti varanna – svo klassískt og fallegt.
Fallegu sandalarnir mínir frá Bianco sem ég vona að veðrið leyfi mér að nota mikið í sumar!
Metallic förðun sem ég gerði með vörum frá Dior sem ég ætla að reyna að ná að sýna ykkur í kvöld eða á morgun!
Ég fór á sérstaklega fallegan tökustað um daginn fyrir myndatöku fyrir útivistarfatnað fyrir Hagkaup – sýni ykkur meira von bráðar.
Lapiz of Luxury frá Essie er að verða einn af mínum allra uppáhalds litum!
Smá teaser fyrir Vikuna sem kom út á fimmtudaginn…
Hér sjáið þið svo forsíðuna sjálfa sem ég er virkilega ánægð með!
Kaffið bragðast alltaf betur í fallegum múmínbolla – þetta er sá nýjasti í safninu, sumarbollinn fyrir árið 2015.
Á góðri stundu í Hafnafirðinum með hinni yndislegu Andreu.
Dásamlegar gersemar sem bættust við í safnið í síðustu viku – frá Andrea Boutique og Burberry.
Sumarvörurnar frá Múmín eru æði! Ég fékk þessar sendar sem gjöf og ætla að gefa einum heppnum lesanda eins sett í glaðning seinna í vikunni.
Buy Me a Cameo ég elska þennan lit. Hann svipar til Pennytalk sem er ekki í úrvali hér á Íslandi en hann er alveg svakalega líkur honum bara aðeins ljósari – frá Essie en ekki hvað.
Við prófuðum brunchinn á Apótekinu um helgina og hann er æði! Mæli eindregið með honum við fórum bæði pakksödd og alsæl út í daginn.
Ein falleg frá Ígló til styrktar Líf fyrir krílið – þarf að segja ykkur betur frá þessari sem fyrst.
Sunnudagslesturinn, Nýtt Líf, Allure, Glamour Iceland, Vikan og Eurowoman með fallegu mæðradags túlípönunum.
Fallegastur mömmu sín – þessi bræðir mig alveg niðrí gólf!
Ein stór 26 vikna bumba!
Loks kom sandalaveður! Ég lakkaði á mér neglurnar að sjálfsögðu með Lapiz of Luxury frá Essie og skellti mér í skónna sem þið sjáið betur hér fyrir ofan.
Þessa birti ég svo í dag, hér sjáið þið fallegu börnin mín, Tinni Snær er á myndinni í maganum á mér og sónarmyndirnar eru af litla krílinu í maganum. Blómin dásamlegu komu svo heim með mér eftir myndatöku dagsins fyrir Reykjavík Makeup Journal.
Annars er vika í skil á 5. tbl af Reykjavík Makeup Journal og það má með sanni segja að stressið sé svona smá farið að gera vart við sig en við keyrum þetta bara í gang og þá er um að gera að vera jákvæð og ég er viss um að allt fari á besta veg!
EH
Skrifa Innlegg