Í fyrsta tölublað Reykjavík Makeup Journal birtist þessi grein sem er með orðum sem förðunarfræðingar nota mikið og margir aðrir en við átta sig kannski ekki alveg á því sem við erum að segja. Þetta var ein af vinsælustu greinunum og mér datt allt í einu í hug að birta hana hér svona ef einhver missti kannski af henni;)
Förðunarfræðingar og förðunaráhugafólk eiga það til að tala bara í tæknimáli sem margir aðrir skilja ekki. Hér eru útskýringar á nokkrum orðum sem hafa kannski vafist fyrir einhverju ykkar.
Matt: Áferð á snyrtivörum. Í flestum tilvikum innihalda mattar snyrtivörur sterkari litapigment en aðrar.
Sanserað: Áferð á snyrtivörum sem minnir á flauel. Sanseraðir augnskuggar eru sérstaklega einfaldir í notkun og blandast auðveldlega saman. Sanseraðir augnskuggar gefa fallegan glans á augun og gefa augnlokunum þrívíddaráhrif.
Smudge: Oft notað sem sögn að „smudge-a“. Þýðir að dreifa úr litnum svo það verði engin skörp skil sbr. setjið eyeliner meðfram augnhárunum og smudge-ið úr honum.
MUA/MA: Skammstafanir sem eru oft notaðar yfir starfsheitið Makeup Artist.
Cupids Bow: Svæðið í miðju efri varanna.
Augnlok: Svæðið sem er á milli augnhára og globuslínunnar.
Globuslína: Globuslínan myndast undir augnbeininu – bogadregin lína. Oftast er talað um að augnskuggar eigi helst ekki að fara fyrir ofan globuslínuna (það er regla sem á aldrei að taka of hátíðlega!).
Augnhvarmur: Vatnslínan í augunum.
Palletta: Box sem inniheldur t.d. fleiri en einn augnskugga eða varalit.
Varalitur blæðir: Þá er verið að tala um að varaliturinn fari út í fínu línurnar sem umkringja varirnar þegar húðin fer að eldast. Oft er hægt að koma í veg fyrir þetta með því að nota primer í kringum varirnar eða með því að setja varalitablýant undir varalitinn.
BN: Stendur fyrir brand new eða glænýtt
BNIB: Stendur fyrir brand new in box eða glænýtt í umbúðum.
Airbrush: Áferð sem kemur á húðina, létt áferð sem er nánast ósýnileg. Farðar sem eru sagðir skilja eftir sig airbrush áferð skilja eftir sig náttúrulega áferð og
Spíss: Eyeliner með spíss var einn af einkennum förðunar á 4. áratugnum. Endinn á eyelinernum sem nær út á augnlokið er kallaður spíss.
Dewy: Áferð sem kemur á húðina þegar rakamiklar snyrtivörur eru notaðar þannig að það kemur náttúrulegur glans á húðina.
Primer: Snyrtivara sem undirbýr húðina fyrir farða. Í flestum tilvikum fyllir primerinn upp í ör, fínar línur og misfellur svo húðin verður slétt.
Hér sjáið þið einn af frægustu förðunarfræðingunum í dag, Charlotte Tilbury sem nýlega bjó til sitt eigið förðunarvörumerki sem hún nefndi í höfuðið á sjálfri sér – mig langar svo mikið til að prófa vörurnar hennar!!!
Vona að þetta hafi ef til vill hjálpað ykkur eitthvað en ef ykkur vantar útskýringar á einhverju fleiru ekki hika við að senda mér spurningar í athugasemdunum við þessa færslu :)
EH
Skrifa Innlegg