Ég var fáránlega spennt að sjá hvernig Magnea myndi fylgja síðustu línunni sinni eftir. Ég varð ekki fyrir vinbrigðum en það gerir bara enginn knitwear eins og Magnea Einarsdóttir.
Í línunni sem hún sýndi í dag á RFF var búin að sauma fína endurskinsþræði inní flíkurnar – snilldarráð til að fá fullorðið fólk til að nota endurskinsmerki. Hér sjáið þið nokkrar myndir en ég hlakka til að skoða flíkurnar betur! Makeup-ið var sjúkt!! En það var Guðbjörg Huldís sem gerði förðunina. Ótrúlega fallegt og vá hvað það lúkkaði vel á sviðinu – varirnar voru í miklu uppáhaldi hjá mér.
Næst á dagskrá er það REY!
EH
Skrifa Innlegg