Næsta miðvikudag fer fram mjög spennandi sýning í tengslum við HönnunarMars. Sýningin nefnist Muses og hún opnar á miðvikudaginn kl: 21.00 og stendur út sunnudaginn á kex hostel.
„Fatahönnunarfélag Íslands stendur fyrir samsýningu á HönnunarMars // DesignMarch þar sem sýnd verða samstörf níu fatahönnuða við íslenska tónlistarmenn. Verkin sýna á misjafnan hátt hvernig listamennirnir hafa áhrif á sköpun hvors annars.“
Ég fékk leyfi til að fá að láni nokkrar myndir af eventi sýningarinnar á Facebook til að gefa ykkur betri sýn á það sem verður í boði:)Kyrja og hljómsveitin Mammút sýna samstarfsverkefni þeirra sem ber „Komdu til mín svarta systir“ verkefnið er innblásið af nýjustu plötu hljómsveitarinnar sem ber einmitt sama nafn. Þessi ótrúlega flotta mynd er eftir ljósmyndarann Anítu Eldjárn.Hildur Yeoman sýnir samstarfsverkeni sitt við hljómsveitinan Samaris en hún hefur séð um klæðnað þeirra á tónleikaferðalagi þeirra um heiminn. Mér finnst Hildur svo mikið æði, hún hannar svo ótrúlega skemmtilegar flíkur og ég er líka sérstaklega spennt eftir sýningunni hennar Yulia í Hafnarhúsinu á föstudaginn – meira HÉR.EYGLÓ frumsýnir sumarlínu sína sem var unnin í samstarfi við söngkonuna Unni Andreu. Ég er búin að sjá nokkrar flíkur úr línunni hennar Eyglóar í tökum sem ég var í um daginn og þær eru ótrúlega fallegar eins og allt sem Eygló gerir – hún gerir svo falleg print og vinnur svo vel með þau.Milla Snorrason og tónlistarkonan Jara sýna samstarfsverkefni sitt á MUSES. Ég er búin að sakna þess að sjá meira frá Millu Snorrason síðan hún sýndi á RFF hér um árið – mögulega fylgist ég bara ekki nógu vel með en ég er spennt að sjá útkomuna. Þessi skemmtilega mynd er eftir ljósmyndarann Nönnu Dís.Ziska og Orri Finn Design eru í samstarfi með hljómsveitinni Fura á MUSES. Harpa Einars er greinilega á fullu þessa dagana en hún frumsýnir líka nýja haustlínu á næsta laugardag þegar RFF°5 fer fram. Ég spjallaði aðeins við Hörpu um daginn og eftir það er ég mjög spennt að sjá það sem hún kemur til með að sýna okkur.
Ég mæli eindregið með þessari sýningu en sjálf stefni ég á að reyna að mæta á opnunina á miðvikudaginn en þá mun hljómsveitin Sometime halda tónleika. Hlakka til að sjá hana Rósu mína in action á sýningunni sérstaklega eftir frábæra frammistöðu hennar á Íslensku Tónlistarverðlaununum.
Þetta er virkilega skemmtileg sýning og það verður gaman að sjá útkomuna þegar listamenn úr ólíkum geirum koma saman og skapa eitthvað stórkostlegt. HÉR getið þið séð allt um sýninguna.
EH
Skrifa Innlegg