Fyrir ykkur sem vissuð það ekki fyrir – efast samt ekki um það að það séu flestir lesendur mínir með þetta á hreinu – þá er ég einlægur aðdáandi breska tískuhússins Burberry Prorsum. Ég er sannfærð um það að Christopher Bailey yfirhönnuður merkisins og fataskápurinn minn séu sálufélagar – sá fyrrnefndi er bara ekki alveg búin að fatta það.
Í hvert sinn sem lína frá merkinu er sýnd lofa ég sjálfri mér því að einn daginn fái ég boð á þennan tískuviðburð sem að mínu mati jafnast ekki á við neinn annan. Ef ég þyrfti í alvörunni að velja á milli þess að fara á Burberry sýningu eða fara á sýningar hjá Chanel, Saint Laurent og Valentino s.s. 3 á móti 1 yrði minn eini sanni Christopher alltaf fyrir valinu. Ég verð aldrei fyrir vonbrigðum enda er ég aðeins búin að fylgjast með hvað er framundan – ég stalka alla starfsmenn Burberry á Instagram….
Sjaldan hefur haustlína verið jafnlitrík en á svo viðeigandi og passlegan hátt. Hlýjar kápur, fallegar slæður, þykkir og stórir treflar voru meðal þess sem sást á pallinum – á morgun ætla ég einmitt inní Gloriu á Laugaveginum til að ná mér í 1 stk stóran trefil. Hef alltof lengi verið á leiðinni en Christopher sparkaði fast í rassinn á mér með þessari sýningu sinni.
Munstrin eru nýbreytni hjá Burberry en ég man ekki eftir að hafa séð þessa áherslu á þeim tíma sem ástarsamband mitt og tískuhússins hefur staðið yfir. Munstrin eru mjúk og þæginleg fyrir augað og úr sannkölluðum haustlitum eins og vinur minn hann Heiðar myndi segja. Kápurnar og slæðurnar eru dýrðlegar en mest girnist ég þó mokkaslánna sem þið sjáið hér fyrir neðan. Ég hvet ykkur til að líta vel yfir myndirnar og upplifa aðeins með mér þessa fallegu hönnun…
Ég er að dýrka stíliseringuna á dressunum á þessari sýningu. Handmáluðu skórnir smellpassa við kápurnar og aðaláherslur Christophers fyrir komandi haust. Virkilega fallegar slárnar sem eru látnar hanga yfir annarri öxlinni og slæðurnar sem eru festar kringum mitti fyrirsætanna með mjóum leðurbeltum. Ég hef svo gaman af svona „layers“ stíliseringu. Annað sem mér finnst alltaf gaman að sjá í Burberry sýningunum er það að það er ekki beint neinn hápunktur. Það er ekki þannig eins og í mörgum sýningum að það koma síðkjólar í lokin – hver dress er úthugsað og gert til að fullkomna heildarmynd línunnar. Það er ekkert endilega beðið með það besta þar til síðast.
Ég veit ég hljóma eins og ég sé eitthvað skrítin þegar ég skrifa um Burberry en ég er ekkert að grínast með það hvað ég dái og dýrka þetta merki af öllum lífs og sálarkröftum. Ef ég mætti fá að ráða þá væri allt heimilið mitt þakið í Burberry mynstri og sonurinn væri mini útgáfa af Romeo Beckham. En ég hef ekki efni á því svo í stað þess er heimilið mitt þakið í múmínskreytingum sem er hin ástríðan mín….
En hvað segið þið um þessa línu frá Burberry – mér þætti gaman að heyra það:)
EH
Skrifa Innlegg