fbpx

Uppáhalds!

Hér sjáið þið myndina sem ég valdi – ég átti í miklum erfiðleikum með að velja en svo rakst ég á þessa flottu Barbie dúkku og fékk smá nostalgíu tilfinningu. Ég á eitt stærsta Barbie safn á landinu – það finnst mér alla vega – og löngu eftir að ég var hætt að leika mér með þær dundaði ég mér að sauma á þær föt, farða og greiða og svo voru þær eins og styttur í herberginu mínu:)

Til hamingju @ingileiff – Ingileif Friðriksdóttir – þú færð að verðlaunum 10.000kr gjafabréf frá Suzie Q endilega sendu línu á trendnet@trendnet.is til að fá betri upplýsingar.

Takk allir fyrir að senda inn svona mikið af flottum myndum og gera okkur þetta erfitt fyrir – svoleiðis á það að vera:)

Góða helgi!

EH

Gestapistla höfundur í Fréttatímanum #5

Skrifa Innlegg

2 Skilaboð

  1. Ingileif

    12. October 2012

    Takk kærlega fyrir mig!! :) ég er alsæl!