Þá er komið að því að tileinka frábærri snyrtivöru sitt eigið video. Þetta er litað augabrúnagel sem er nýlegt frá Maybelline og heitir Brow Drama Sculpting Mascara. Gelið mótar og þéttir augabrúnir á engum tíma. En það sem ég kann svo vel við er að það er að lita hárin í augabrúnunum ekki endilega bara húðina í kringum hárin. Ég nota reyndar stundum augnskugga eða púðurlit til að móta augabrúnirnar en þá bara ef ég vil fá meiri skerpingu. Mér finnst það samt alltof mikið dags daglega og þess vegna hentar þetta gel mér ótrúlega vel. Ég er farin að nota það á hverjum degi en ég sýndi ykkur það einmitt fyrst þegar ég gerði videoið með minni daglegu förðun.
Hér sjáið þið hvernig ég nota augabrúnagelið:
Hér eru mínar augabrúnir fyrir litun…
Hér er svo mynd af mér með miklu þéttari og flottari augabrúnir!Ég veit ekki með ykkur en ég sé hrikalega mikinn mun – sérstaklega fremst í augabrúnunum :)
Eins og ég segi í videoinu þá eru til tveir mismunandi litir, ég er með þann dekkri sem heitir Dark Brown en svo er líka til Medium Brown sem er mun hlýrri litur.
Mæli hiklaust með þessu geli og ef ykkur líst vel á þá ættuð þið að hafa hraðar hendur því það seldist upp mjög hratt síðast :)
EH
Skrifa Innlegg