fbpx

Þessa Dagana

Blog

Hér er smá listi yfir uppáhalds hlutina mína þessa dagana og sem eru mér allir bráðnauðsynlegir eða það finnst mér alla vega;)

Hárklemman sem ég keypti mér í DK í sumar er alltaf í notkun. Er alltaf með hárið fast upp í klemmu t.d. þegar ég er að farða.

Hárböndin/Hálsmenin mín sem ég er nánast með daglega - verða bráðum fáanleg á netinu!

Hárböndin/Hálsmenin mín sem ég er nánast með daglega - verða bráðum fáanleg á netinu!

Minnisbókin mín og ég erum nánast óðaskiljanlegar þessa dagana. Nóg að gera þessa dagana meðal annars 2 spennandi myndatökur í næstu viku.

Ipadinn minn sem ég kann ekkert á en það er svo gaman að fikta;)

Þetta eru mínir uppáhaldshlutir þessa dagana veit ekki hvort það breytist mikið á næstunni en ef þá læt ég ykkur vita;)

Dagskrá næstu daga er spennandi og smekkfull! Myndataka með Mónitor og önnur með tveimur flottum Pjattrófum – svo er ég að pæla í að prófa að fara í Hot Yoga um helgina sem verður mjög spennandi að sjá hvernig gengur – ekki alveg sú liðugasta. Er ábyggilega ein af fáum sem á foreldra sem voru beðin af ballettkennaranum að senda mig ekki aftur í ballett árið eftir. Ég er svo sem ekki sár og get vel skilið hana því ég gat víst hvorki valhoppað né náð í tærnar mínar ég var reyndar 5 ára – en ég get þetta svo sem ekki enn…

EH

Pressa

Skrifa Innlegg

Skilaboð 1

  1. Þóra Magnea

    17. August 2011

    Þú máttir alveg koma árið eftir í ballett en hún reyndi nú samt að afsaka ballettherlegheitin hjá þér! Við vorum samt SVO stolt að stúlkunni sem skakklappaðist þetta á eftir ballettenglunum.