fbpx

Terry Richardson & Nasty Gal

Ohh Nasty Gal! Bara ef ég ynni einhver tíman stóra vinninginn í Víkingalottóinu þá myndi ég kaupa allar dýrindis flíkurnar á Nasty Gal – núna er það ein og ein í einu:)

Næst á dagskrá hjá versluninni og eiganda hennar, Sophia Amoruso, er að setja fyrstu hönnun sína í sölu á síðunni. Á dögunum birtist lookbookin á netinu sem enginn annar en Terry Richardson myndaði. Fyrsta línan samanstendur af 26 flíkum, innblástur hennar er Pretty Woman og Pretty In Pink og heitir línan Weird Science.

Þetta er ekki það eina sem er að gerast hjá Nasty Gal en í september kemur líka út í fyrsta sinn veftímarit á þeirra vegum. Greinilega nóg að gera hjá Sophiu og félögum!

Ég hefði ekkert á móti þessum jakka – fyrir neðan getið þið svo séð fleiri flíkur.

 

Menningarnætur Ég:)

Skrifa Innlegg

Skilaboð 1

  1. Rut R.

    21. August 2012

    Úff…. jakkinn með síða kögrinu er ROSALEGUR! :)