fbpx

Sýnikennsla – Bobbi Palletta & Límband

AuguBobbi BrownLúkkmakeupMakeup ArtistNáðu LúkkinuSýnikennsla

Mig langaði að gera sýnikennslu fyrir augnskuggana úr nýju Bobbi Brown pallettunni sem ég skrifaði um HÉR. Ég fékk innblástur frá hinum ýmsu makeup artistum sem ég fylgist með á Instagram. Mér finnst þau rosalega dugleg að gera hvassar útlínur á augnfarðanirnar sínar og mig langaði að prófa að gera það sjálf. Ég hef áður notað límband til að móta eyeliner en aldrei augnskugga – ég er bara frekar skotin í útkomunni þó ég segi sjálf frá.Ég byrjaði á því að föndra mynd til að sýna ykkur á auðveldan hátt hvaða augnskugga ég er að nota í hvaða röð;)

  • Ég byrjaði á því að grunna augnlokið með lit nr 1. setti hann yfir allt augnlokið og alveg uppundir augabrúnirnar.

  • Næst rammaði ég inn miðju augans með lit nr. 2. Ég setti hann sem sé yst og innst á agunlokið og í globuslínuna svo það myndast smá gat í miðju augans.

  • Næst kom ég límbandinu fyrir. Ég reyndi að setja límbandið þétt uppvið ytri agunkrókinn svo að línan myndi myndast beint útfrá honum. Þetta tókst nokkuð vel hjá mér held ég bara – en þetta er ekkert sérstaklega þæginlegt til lengdar svo það er um að gera að drífa þetta skref af;)
  • Þegar límbandið var komið á sinn stað setti ég lit nr. 3 yst á augnlokið og yfir límbandið svo þessi skarpa lína myndi koma.

  • Fjarlægið svo límbandið varlega af og lagið til ef eitthvað hefur farið útfyrir.

  • Af því pallettan er nú úr línu sem ber nafnið Lilac Rose Collection þá fannst mér við hæfi að nota þenna fallega lillabláa sanseraða lit nr. 4 – ég setti hann yfir miðju augnloksins. Til að fá bara létta áferð á litnum þá myndi ég nota frekar stóran og léttan augnskuggabursta til þess að bera skuggann á.

  • Í staðin fyrir að nota eyeliner setti ég matta dökkbrúna litinn nr. 5 meðfram augnhárunum í kringum augað og smudge-aði hann svo aðeins útí augnförðunina.

  • Að lokum setti ég svo nóg af maskara og flottan varalit. Hér er ég með L’Oreal False Lash Wings maskarann og varalit frá Smashbox lit Vivid Violet.

Ég ætla klárlega að vera duglegri við að nota límband í augnfarðanir héðan í frá!

Lilac Rose lína frá Bobbi Brown sem inniheldur meðal annars þessa fallegu augnskuggapallettu er nú fáanleg í verslunum en aðeins í takmörkuðu upplagi svo ef ykkur líst vel á skuggana þá er um að gera að skella sér í snyrtivöruinnkaupaferð!

EH

BB augnkrem frá Dior

Skrifa Innlegg