Ég tók að mér fyrsta makeup verkefnið eftir fæðinguna núna um helgina. Það er að farða hana Unni Eggertsdóttur keppanda í Söngvakeppni Sjónvarpsins, eins og þið ættuð að vita þá er hún að syngja lagið „Ég Syng“. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem ég farða Unni og verður án efa ekki í það síðasta!
Fyrir keppnina farðaði ég Unni með vörum frá Maybelline og varan sem er í aðalhlutverki eru Color Tatto augnskuggarnir. Þetta eru gelaugnskuggar – aðeins þykkari en kremaugnskuggar – sem eru ótrúlega einfaldir í notkun.Hér sjáið þið vörurnar sem ég notaðist við og Real Techniques burstana sem ég er algjörlega ástfangin af! Ég byrja á því að skyggja augnlokin með Color Tatto augnskuggunum og set svo svipaða liti í púðuraugnskuggum yfir bara til að matta aðeins augnlokin. Svo setti ég nýjasta Falsies maskarann og svo hárið hennar myndi ekki festast í varalit eða gloss á vörunum notuðum við bara varablýant – snilldarlausn!Rosalega hlakka ég til að sjá hana Unni mína á sviðinu í kvöld. Því miður gat ég ekki verið með henni allan daginn það þarf víst að passa uppá að Tinni litli fái nóg að drekka.
Áfram Unnur!
EH
Skrifa Innlegg