fbpx

Solestruck 30% Aukaafsláttur!

Ég hoppaði hæð mína í sætinu mínu þegar ég sá þetta – 30% aukaafsláttur af útösluvörum fyrir þær sem tengjast inná solestruck heimasíðuna í gegnum Facebook.Þar sem ég lofaði mér að ég myndi ekki kaupa mér skó sem ég gæti ekki notað á meðgöngunni þá ákvað ég að segja ykkur frá þessu – það er alla vega gaman að kíkja og sjá það sem er í boði. Það er nú þannig veður úti að það er bara kósý að kúra uppí sófa með sæng og skoða fallega skó!

HÉR er útsalan;) – Góða skemmtun!

EH

Sjáumst í Október...

Skrifa Innlegg

7 Skilaboð

  1. Pattra's

    5. September 2012

    Ó my.. var einmitt að klikka heim 2 pör í dag!! Vonandi heppnaðist þetta fínt hjá mér hef bara keypt á netinu einu sinni frá Nelly og varð fyrir þvílíkum vonbrigðum..

    Nú spyr ég pro.. hvernig er reynslan þín á Solestruck?? Xx

    • Reykjavík Fashion Journal

      6. September 2012

      ó hún er svo góð! alltaf smellpassað og alltaf verið svo ánægð með kaupin – er að slefa yfir einum frá To Be Announced þessa stundina – þessir sem eru copy af glimmer miu miu – kosta bara $50 það er eiginlega bara gefins;)

  2. Pattra's

    6. September 2012

    Já ég sá þá!! Top niiice ;) Æðislegt að heyra, ég nefnilega var smá smeyk varðandi stærðir.. googlaði semsagt hvað ég myndi taka í US.. tók 6 sem á að vera 36.. hvaða stærðir hefuru verið að taka? -stress

  3. Reykjavík Fashion Journal

    6. September 2012

    Ég er 37 svo ég tek 7 t.d. í Jeffrey Campbell;) – af því þeir koma venjulega ekki í hálfum stærðum (annars er ég 6.5 eða 7), svo þú ættir að vera safe;)

  4. Pattra's

    6. September 2012

    Gott mál ;) Nú er það bara að bíða spennt.. vonandi verður tollurinn svo ekki með stæla hehe
    Xx

  5. Jovana

    6. September 2012

    Hefuru getað fengið sent til Islands? Ég ætlaði að klára greiðslu i gegnum paypal enn þá kom að þau senda ekki til islands. Ahh kv ein sem er algjörlega ný i þessu! :)

    • Reykjavík Fashion Journal

      6. September 2012

      Nei aldrei lent í veseni með það ég hef keypt 4 sinnum og ekkert mál…. Vona að þetta virki á endanum hjá þér:):)