fbpx

Sleepwalker – merki sem er vert að fylgjast með;)

Blog

Ragna Margrét Guðmundsdóttir hannar dýrindis fallegar flíkur undir merkinu Sleepwalker. Ragna er að klára fataiðn í Tækniskólanum í Reykjavík. Hún eignaðist stelpu í vor og notaði fæðingarorlofið sitt til þess að skapa Sleepwalker.

Mér finnst æðislegt þegar fólk tekur sig til og skapar eitthvað nýtt og fallegt. Það sem er í sérstöku uppáhaldi hjá mér frá Sleepwalker eru fallegu skyrturnar hennar:

Ég elska doppur um þessar mundir og þessu skyrta myndi sæma sér vel yfir maxi kjól, pils og við gallabuxur.

Röndótt er og verður alltaf fallegt - slaufan setur svo punktinn yfir I-ið ;)

Mynd sem snillingurinn og kær vinnufélagi minn Hrefna Sigurðardóttir gerði!

Ef þið viljið eignast svona dýrindis flík getið þið sent póst á ragna@sleepwalker.is með upplýsingum um vöruna sem þið viljið panta. Ragna rukkar svo vöruna í gegnum paypal sem er t.d. greiðsluþjónustan sem ég nota þegar ég panta vörur fyrir ykkur;)

Til að skoða fleiri flíkur þá mæli ég með að þið kíkið hér:

HEIMASÍÐA SLEEPWALKER

FACEBOOKSÍÐA SLEEPWALKER

Svo er flott umfjöllun um Rögnu í fylgiriti Morgunblaðsins í dag Tíska og Förðun.

EH

Annað Dress

Skrifa Innlegg