fbpx

Sjálfspíning?

Að vera ólétt og að vera forfallinn skófíkill fer alls ekki vel saman. Ég fór inná uppáhalds skósíðuna mína í gærkvöldi og skoðaði það sem er í boði hjá nokkrum uppáhalds hönnuðum. Óskalistinn lengdist en ekkert rataði í kröfuna, einkum vegna þess að ég fékk illt í bakið um leið og ég horfði of lengi á skónna. Svo hef ég heyrt að maður eigi bara alls ekkert að versla of mikið þegar maður er óléttur því maður fær víst ógeð af öllu sem maður kaupir á meðgöngunni og notar það aldrei aftur – gildir kannski ekki um háa hæla en ég tek enga áhættu! – þið bumbulínurnar þarna úti kannist kannski við þetta:)

Hér eru nokkrir af þeim sem lengdu óskalistann:

Studio TmlsStudio TmlsDolce VitaUnif Messeca

Ég get þó kannski fengið mér þessa til að vera með ykkur hinum Ó-óléttu

B and D

Ég get samt lofað því að í dag þegar ég fer út mun ég fyrst fara í háa hæla labba nokkur skref heima, gefast svo upp og fara í strigaskó…..

EH

Nýtt í Fataskápnum - Ebay

Skrifa Innlegg

10 Skilaboð

  1. Íris Björk

    16. August 2012

    ooo mig er búið að langa í Unif skóna í næstum hálft ár ! ég bíð og vona enþá að þeir hætti að kosta handlegg !

  2. Reykjavík Fashion Journal

    16. August 2012

    Já þeir eru gullfallegir – en einmitt kosta svolítið mikinn pening – en hver veit kannski verðurðu heppin og þeir fara á útsölur um áramótin:)

  3. Asa

    16. August 2012

    Svo skemmtilegt hvað þú ert virk hérna á nýju síðunni :)

  4. Fatou

    16. August 2012

    Þetta eru svo sannarlega fallegir skór!

  5. Reykjavík Fashion Journal

    16. August 2012

    Takk! – það er smá spark í rassinn að standa sig þegar maður er á svona nýrri fínni síðu:)

  6. Kara

    17. August 2012

    Oh lord hvað þeir eru allir fínir! hvaða síða er þetta?

  7. Agla

    17. August 2012

    elska Messeca og Unif!

  8. asta

    17. August 2012

    Ég er ófrísk og það var verið að banna mér að vera í háum hælum getur víst skemmt lappirnar á manni :(

  9. Reykjavík Fashion Journal

    17. August 2012

    Kara, þeir eru allir til á Solestruck.com – senda til Íslands, stóhættulegt!

    Ásta, já það er eins gott að þessi börn okkar viti hverju við fórnum fyrir þau;D

  10. Edda Sigfúsdóttir

    17. August 2012

    Þú getur að minnsta kosti keypt strigaskónna með hælamyndinni!;)