fbpx

See by Chloé

Ég hef alltaf verið voðalega hrifna af ilmvötnunum frá Chloé en ekki ennþá fundið það sem passar mér þar til nú þegar ég fann ilminn af nýja See by Chloé ilmvatninu. Þetta er fyrsti ilmurinn frá merkinu en það er sá sami og gerði upphaflega Chloé ilminn sem bjó þennan til – Michel Almairac.

Ilmurinn er ofboðslega léttur og ferskur. Ég myndi líkja honum við létt bodyspray en hann endist að sjálfsögðu miklu lengur. Þetta er ilmur sem ég sé fyrir mér að gæti orðið einkennisilmur ákveðinna týpa.

Ilmurinn fangar athygli manns með léttum eplailmi sem fer síðan yfir í Jasmínblómið og að lokum er það grunnnótan sem er vanilla.

Flaskan er sérstaklega einföld en áferðin á flöskunni minnir á Chloé flöskurnar. Glasið fangar birtuna í kringum sig og endurkastar henni á fallegan hátt svo það lýsist upp. Mér finnst myndin hér fyrir neðan sérstaklega skemmtileg – hverjum dreymir ekki um fallegt ljós búið til úr ilmvatnsglösum!

Æðislegur ilmur sem er fullkominn fyrir sumarið! Er ekki tilvalið að kíkja á hann á Tískudögum í Smáralind, hann er fáanlegur t.d. í Hagkaupum. Svo getið þið kíkt til mín á efri hæðinni og fengið flottan varalit*

EH

Veikindi...

Skrifa Innlegg

Skilaboð 1

  1. Guðbjörg

    21. April 2013

    Ég dýrka Chloé signature ilmvatnið!
    Ótrúlega góð ilmir.