fbpx

Pat McGrath

Þessi breski Makeup Artisti sem var eitt sinn nefnd sem mesti áhrifavaldurinn í förðunarheiminum í Vogue er einstaklega hæfileikarík þegar kemur að því að skapa listaverk með förðunarpenslinum. Tískuhúsin berjast sín á milli um að fá hana sem makeup hönnuð enda er held ég nánast alltaf alltof mikið að gera hjá henni og ég vona svo sannarlega að hún taki sér alltaf gott frí þegar tískuvikunum líkur.

Ég hef skrifað pistil fyrir Fréttatímann þar sem ég talaði um hverjir áhrifavaldarnir í tískuheiminum eru en Pat er án efa einn af áhrifavöldunum þegar kemur að förðunartískunni.

Hér fyrir neðan eru nokkur dæmi af listaverkunum sem hún hefur skapað fyrir tískuheiminn.Það sem mér finnst svo gaman að pæla í þegar ég skoða yfir myndirnar er hvað sama konan nær að skapa farðanir sem passa svo vel fyrri hvert merki fyrir sig án þess að þær minni mikið hver á aðra.

EH

Mikki Mús

Skrifa Innlegg