fbpx

JÖR

Annað kvöld klukkan 8 opnar verslunin JÖR by GUÐMUNDUR JÖRUNDSSON á Laugaveginum að því tilefni verður haldið opnunarpartý sem mér finnst að sem flestir ættu að mæta í!

Verslunin er staðsett á Laugavegi 89 eða þar sem verslunin EVA var áður. Fyrst um sinn verður seldur herrafatnaður frá JÖR í versluninni en í haust þá verður fyrsta dömulínan sett í sölu – línan sem var kynnt á RFF. Verslunin er hönnuð af leikmyndahönnuðinum Axeli Hallekeli Jóhannessyni svo það er greinilega mikið lagt í hana og það verður gaman að sjá hver útkoman er!
Ég var heilluð af haustlínu JÖR sem var frumsýnd á RFF og hlakka til þegar tækifærið kemur til að eignast flíkur úr línunni. 

Baksviðs hjá JÖR á RFF

Ég kemst því miður ekki á opnunina þar sem ég verð stödd á frumsýningu hjá Íslenska Dansflokknum en ég ætla í staðin að kíkja um helgina – en fyrir ykkur sem komist ekki heldur þá verður verslunin opin bæði laugardag og sunnudag frá 10-18.

EH

Dásamlegir Burstar

Skrifa Innlegg