fbpx

Nýtt í Snyrtibuddunni

Bobbi BrownmakeupMakeup TipsMaskararNýtt í snyrtibuddunni minni

Þegar ég fékk þennan maskara varð ég strax heilluð og ég var ekki einu sinni búin að prófa hann. Þetta er maskari sem inniheldur 2 af vinsælustu möskurunum frá Bobbi Brown. Svona finnst mér að fleiri merki ættu að gera að gefa kúnnunum sínum tækifæri til að kaupa uppáhalds vöruna sína og fá aðra eiginlega í kaupbæti.Á augnhárunum mínum hér fyrir neðan ættuð þið að taka eftir því að á hvoru auganu er ég með mjög ólíka maskara.

Á því hægra er það maskarinn Lash Glamour Extreme Lengthening. Maskarinn er með gúmmíbursta sem aðskilur hvert og eitt augnhár alveg og umlykur þau vel. Mér fannst hann byggja vel ofan á lengd augnháranna minna þó svo það sjáist ekki alveg nógu vel á myndinni hér þar sem mín hár eru svo beint fram. Maskarinn rann léttilega yfir öll augnhárin og skyldi ekki eftir sig neina klumpa.og á því vinstra er það maskarinn Everything. Hann eins og nafnið gefur til kynna á að gefa augnhárunum allt. Mér finnst hann gefa augnhárunum mínum meiri fyllingu en hinn maskarinn – hann er með venjulegri greiðu sem greiðir ekki jafnvel úr augnhárunum eins og hinn svona ekta þykkingarmaskari. Það eina sem mér finnst oft með svona greiður er að neðri augnhárin mín verða stundum smá klínd saman og ég smita stundum litinn í kring um hárin því ég reyni alltaf að þvinga burstanum þannig að augnhárin fari alveg í gegnum hárin á greiðunni. Það er það góða við gúmmíburstana ég þarf aldrei að pæla í því.Eftir að hafa prófað báða maskarana myndi ég segja að þessi með gúmmíinu hentaði fyrir dagförðun og hinn fyrir kvöldförðun – en ef ég ætti að velja á milli þá er það gúmmíið sem stendur uppi sem sigurvegari – ég er bara svo hrifin af gúmmíburstum. Ef þið hafið ekki prufað þá þá verðið þið að fara að gera eitthvað í því:)

Hér eru báðir maskararnir á sitthvoru auganu – þetta er í fyrsta sinn sem ég prófa það en eftir á að hyggja fær maður ekki betri samanburð en einmitt að gera þetta þannig!

Ég er alveg heilluð af fræðinni á bakvið maskara og einn af mínum heitustu draumum er að fá að búa til minn eigin maskara, hann yrði þá að sjálfsögðu fullkominn fyrir mig þó svo ég yrði ábyggilega fljót að skipta yfir í e-h nýjan þegar ég væri búin með fyrstu túbuna;)

EH

BB Nýjungar

Skrifa Innlegg