Mér leiðist nú ekki þegar nýjungar koma inná snyrtivörumarkaðinn og ég efast ekki um að það séu margar þarna úti sem eru sammála mér. Svo það er dálítið gaman að fá að “hvísla” því að ykkur að vörurnar hér á myndinni – og að sjálfsögðu fleiri frá merkinu – eru væntanlegar í sölu hér á landi!
Í kvöld ætla ég að prófa sjálfbrúnkuna og að sjálsögðu deila með ykkur árangrinum. Ég ætla að segja bless við janúar-grámygluna og heilsa febrúar ferskleikanum með hjálp St Tropez.
EH
Skrifa Innlegg