fbpx

Nicole Richie fyrir Macy’s

12. september næstkomandi mun fyrsta lína Nicole Richie fyrir verslunina Macy’s vera fáanleg. Línan verður í anda 8. áratugarins eins og svo margt annað sem Nicole hefur hannað, boho-chic lýsir línunni best. Hér er smá sýnishorn af því sem í boði verður – jakkinn má alveg rata í minn fataskáp.Nicole hefur verið áberandi í tískuheiminum síðustu ár en merkin hennar House of Harlow og Winter Kate hafa boðið uppá skartgripi, fatnað, skó, sólgleraugu og töskur. Núna undanfarið hefur hún verið lærimeistari í þáttunum Fashion Star – mér fannst þeir hálfgert flopp því miður. Horfði á einn þátt, náði ekki tilgangnum og datt út eftir það. Ég skrifaði einmitt um hárböndin sem Nicole var með í þeim þáttum.

Ef þið eruð staddar nálægt Macy’s verslun þann tólfta þá mæli ég eindregið með að þið kíkið við því verðið verður ekki af verri endanum. Flíkurnar verða á verðbilinu 49$ -149$ – ekki slæmt!

EH

p.s. Skyrtan sem Nicole er í á myndinni verður einnig í boði.

Lana Del Ray fyrir H&M

Skrifa Innlegg