fbpx

Narciso Rodriguez

FallegtFashionFyrirsæturStíllTrend

Narciso er hönnuður sem hefur ekki oft hitt naglann á höfuðið með sýningunum sínum og er stundum bara einu season-i á eftir… En mér finnst flíkurnar sem hann sýndi í NY í gær virkilega fallegar og passa vel við trendin sem eiga að vera heit næsta haust skv nýafstöðnum sýningum.

Flíkurnar eru allar vel sniðnar og fallega gerðar. Einfaldleikinn ræður ríkjum samt en stöku sinnum koma flottar áberandi litasamsetningar. Neðstu 3 kjólarnir eru í uppáhaldi hjá mér. Þó svo að sýningin hafi kannski ekki alveg slegið í gegn þá fannst mér bara svo gaman að sjá þessa flottu framfarir hjá hönnuðinum og langaði þess vegna að skrifa aðeins um hann:)

Flottur í New Balance strigaskóm – á meðan fyrirsæturnar labba um í támjóum skóm en hafið þið tekið eftir því að það eru támjóir skór á nánast öllum sýningum í ár….!

EH

BB Krem framhald...

Skrifa Innlegg