Enn og aftur er það Cara sem á lúkkið í „náðu lúkkinu“ lið vikunnar:)
Hér myndi ég segja að augabrúnirnar væru í aðalhlutverki ásamt vörunum.
- Til að ná augabrúnunum væri best að þétta þær með því að setja dökkan augabrúnablýant á milli háranna. En passið ykkur þó að velja brúnan lit sem hentar ykkar litarhafti. Ef þið eruð með þynnri augabrúnir en Cara ekki reyna að teikna þær á – gerið sem mest úr ykkar eigin augabrúnum með því að greiða hárin t.d. upp og setjið svo gel eða hársprey í þær svo þær haldi sér.
- Setjið sanseraðan koparlitaðan augnskugga yfir augnlokið og meðfram neðri augnhárunum. Dreifið jafnt úr litnum yfir augun.
- Frá þessu sjónarhorni virðist hún ekki vera með skarpan eyeliner – ég myndi frekar nota svartan mattan augnskugga fyrir eyeliner og fara sparlega með hann.
- Notið ljósan mattan augnskugga til að jafna útlínur augnskuggans – setjið ljósa litinn við útlínur kopar litaða augnskuggans.
- Setjið ljósan sanseraðan augnskugga í innri agunkrókana.
- Setjið svartan maskara á augnhárin.
- Finnið svo flottan orange rauðan varalit og setjið á varirnar. Þið getið líka sett orange varablýant yfir varirnar og sett svo rauðan varalit yfir hann.
- Svo myndi ég setja nóg af möttu sólarpúðri undir kinnbeinin og loks brúntóna kinnalit í kinnarnar.
Ég dýrka þessa mynd og þetta makeup – fullkomið föstudags!
EH
Skrifa Innlegg