fbpx

Michael Kors er á leiðinni til Íslands!

FashionmakeupNýjungar í Snyrtivöruheiminum

Í alltof langan tíma er ég búin að þurfa að þegja yfir komu snyrtivörulínu frá einum vinsælasta fatahönnuði heims um þessar mundir. Hér er á ferðinni hönnuður sem hefur svo sannarlega sigrað heiminn á frekar stuttum tíma og teygjir merkið hans sig yfir í flestar greinar tískuheimsins. Michael Kors er hönnuður sem er vel þekktur meðal íslenskra kvenna en ætli þær séu ekki þónokrar íslenskar dömur sem eiga tösku, úr eða t.d. sólgleraugu frá honum. Fylgihlutirnir hans eru sérstaklega vinsælir hér á landi og þó ég hafi aldrei gerst svo fræg að eignast hlut frá honum – svarið er einfalt ég fæ valkvíða – þá er ég spennt að fá að kynna komu fullkominni fylgihlutalínu sem fullkomnar hvaða lúkk sem er!

Á næstunni mun verslunin Lyf og Heilsa í Kringlunni bjóða uppá snyrtivörurnar frá Michael Kors í versluninni sinni fyrst hér á Íslandi… afsakið meðan ég ískra af spenningi og tek ykkur með inní draumaheim snyrtivöruóða Michael Kors aðdáandans…

mk_1 michael-kors-makeup-9PRCq1WK1ZB4l  KORS_2678156c 6a00e553d45a2a88330192acc365de970d-800wiMichael-Kors-Fragrance-Beauty-2013-Collection-01 michael-kors-makeup-bronze-powder-collection-with-brush fall-michael-kors-beauty-story-0 1097869_10153071488240551_2140193581_o banner-21 Facebook o-MICHAEL-KORS-BEAUTY-LINE-570

Hér fáið þið þefinn af því sem koma skal. Uppsetningin á línunni er virkilega skemmtileg og hugmyndin á bakvið hana endurspeglar það sem ég hef svo gaman af og það er að hér eru á ferðinni vörur sem eru fylgihluturinn sem fullkomnar heildarlúkk hverrar konu. Ég fékk góða kynningu á merkinu sem ég er búin að bíða eftir núna í ár fyrir helgi og ég verð bara spenntari og spenntari og þá sérstaklega fyrir því að segja ykkur betur frá og sýna ykkur lúkkin sem línan bíður uppá.

Meira um snyrtivörurnar frá Michael Kors á næstu vikum og að sjálfsögðu mun ég kynna væntanlega komu dagsetningu línunnar á blogginu þegar hún er staðfest!

EH

Væntanlegt frá MAC

Skrifa Innlegg

4 Skilaboð

  1. Elín Þórhallsdóttir

    2. March 2015

    Veistu í hvaða verðflokki MK-vörurnar eru?

    • Já svona sirka en ég hef ekki heyrt nein nákvæm verð en skal láta þau fylgja með í næstu færslum um merkið ef ég verð búin að fá þau á hreint fyrir þann tíma ;)

    • Takk fyrir að deila þessari með mér :) En endilega prófaðu að nota olíuríkan augnhreinsi til að ná af maskaranum eða búðu jafnvel til sérstaka hreinsiklúta með kókosolíu og sjóðandi vatni ;)