fbpx

Meistaramánuður

Blog

Ég ætla að slá til og taka þátt í atburðinum Meistaramánuður ásamt 2000 samlöndum mínum sem hefst á laugardaginn. Ég held að nánast allir samstarfsfélagar mínir ætli að taka þátt líka og það er mikil samstaða hér inná stofu meirað segja ætlar kokkurinn að taka sig til og elda hollari mat, en tveir vinnufélagar mínir standa einmitt á bakvið þetta átak. Meistaramánuðurinn felur ekki endilega í sér átak fyrir líkamann heldur líka fyrir sálina – hljómar væmið en samt, fólk er hvatt til að setja sér markmið sem það klárar fyrir lok mánaðarins – Meistaramánuðurinn er 30 dagar. Þið getið t.d. sett ykkur það markmið að vera duglegri í starfi, fara annan hvern dag í vinnuna, nota bílinn minna og nota almenningssamgöngur í staðinn eða labba eða hjóla ykkar ferðir, spara pening – t.d. væri fínt fyrir mig að fara í kaupbindindi….;) Ég er enn að fínpússa mín markmið sem snúast þó helst um hollara matarræði, vera dugleg í ræktinni og að vakna fyr á morgnanna svo ég hafi tíma til að slaka aðeins á og borða morgunmat sem er jú aðal máltíð dagsins.

Ég hvet ykkur til að kynna ykkur átakið, hér eru helstu síðurnar:)

Facebook
EVENT Á FACEBOOK
Twitter: @meistaramanudur
Instagram: #meistaram
TUMBLR

EH

elistabeth & james SS2012

Skrifa Innlegg