fbpx

Meiri snjó, meiri snjó, meiri snjó!

Blog

Yndislegasti tími ársins er að renna í garð og það besta er að ég get horft útum gluggann og fylgst með jólagleðinni sem ríkir á laugaveginum núna og næstu vikur. Jólaskrautið er komið upp og aðventusnjórinn var að lenda. Sunnudagurinn fer síðan í algjört jólastúss en ég ætla þá að setja seríur í gluggana og blasta jólalögum á meðan ég reyni að finna út hvernig ég ætla að pakka inn jólajgöfunum í ár – elska að pakka inn jólagjöfum og ég reyni að dunda mér við það eins lengi og ég get því mér finnst ekkert skemmtilegra en að gefa fallegar gjafir. Innihald pakkanna í ár er flest komið í hús annað er á leiðinni ég held ég hafi aldrei verið jafn snemma í því:)

Allt er svo fallegt í jólaþorpinu Reykjavík:)

EH

Södd....

Skrifa Innlegg