fbpx

Makeup Biblían Mín

FallegtLífið MittmakeupMakeup Tips

Hluti af förðunarnáminu mínu var að skila inn bók með helstu atriðunum sem við höfðum lært um í náminu. Bókin átti nú ekki að vera mjög stór en mér tókst að fara með hana aðeins útí öfgana – en í staðin á ég mína eigin makeup biblíu með öllum glósunum mínum og meira til!

Ég keypti möppu með glærum plastvösum í Eymundsson og þakti coverið algjörlega í makeup myndum sem veittu mér innblástur og svo plastaði ég hana. Hér fáið þið smá innsýn í listaverkið mitt:

Ég fletti reglulega í gegnum bókina og hún vekur alltaf lukku hjá vinkonum mínum sem kíkja í heimsókn og laðast að þessari girnilegu bók. Aftast í bókinni setti ég svo það sem ég hafði gert t.d. inní versló eins og plaköt, myndaþætti og nemó myndir og mér finnst ótrúlega gaman að skoða það því ég fer smá hjá mér yfir mistökunum sem blasa við mér því mér finnst ég hafa lært töluvert og tekið miklum framförum á síðustu 5 árum – trúi því varla að á næsta ári sé ég búin að starfa sem makeup artisti í 6 ár!!

Liðurinn sem er þó mest lesinn í bókinni eru tímabilafarðanirnar ég þarf reglulega að fá smá upprifjun þar oft þar sem mér finnst gaman að innleiða stíl ákveðinna tímabila í förðunarverkefni en ekki bara gera sömu banana skygginguna aftur og aftur – þannig passar maður uppá fjölbreytni í starfi;)

EH

Kremaugnskuggar - Sýnikennsla

Skrifa Innlegg

2 Skilaboð

  1. Hjördís

    31. December 2012

    Hvar varstu að læra? :)