fbpx

Litur í Vatnslínunni


Þið sáuð vonandi sem flestar sýnishornið af sýnikennslunni sem ég setti inn um helgina. Hér sjáið þið myndirnar sem veittu mér innblástur – ég hef ákveðið að reyna að gera sýnikennslu fyrir flest öll makeup trendin sem ég birti á síðunni, líka það sem mér finnst flott og það sem þið biðjið um.

Að setja eyeliner í vatnslínuna – augnhvarminn – getur breytt svo heilmiklu varðandi augun. Að setja svartan lit minnkar augun að setja hvítan lit stækkar þau. Undanfarið hefur mér síðan þótt flott að setja sterkan lit í vatnslínuna á móti hlutlausum litum. Þið getið notað blýanta, kremaugnskugga eða púðuraugnskugga. Ég er mikið búin að vera að nota gelaugnskugga sem eru væntanlegir til landsins frá einu af uppáhalds merkjunum mínum. Bara að setja svartan eyeliner meðfram augnhárunum, flottan lit í augnhvarmana og nokkrar umferðir af maskara er flott og fljótlegt lúkk fyrir næsta djamm.

Sýnikennslan birtist í vikunni.

Harper's Bazaar September Issue

Skrifa Innlegg