fbpx

Lisa Eldridge

Ég Mæli MeðmakeupMakeup ArtistMakeup TipsSýnikennsla

Seinna í dag ætla ég að birta fyrsta sýnikennslu videoið mér finnst það ekki alveg fullkomið en ég vona að ykkur líki það. Áður en ég tók fyrsta myndbandið upp fór ég aðeins að rannsaka hvernig Youtube makeup skvísurnar gerðu þetta og Lise Eldridge sjálf drottningin var auðvitað sú fyrsta sem ég kíkti á. Hennar myndbönd eru ótrúlega flott, hún sýnir bæði farðanir á sjálfri sér og öðrum og er með styttri innslög þar sem hún talar t.d. um vörur og sýnir einföld makeup trikk.

Hún er ótrúlega flottur og hæfileikaríkur makeup artisti með mikla reynslu úr bransanum og ég hvet ykkur sem hafa áhuga á förðun að fylgjast með heimasíðunni hennar – Lisa Eldridge – hún er einnig í flottu viðtali í nýjasta Eurowoman þar sem hún talar um myndböndin sín og segir meðal annars frá því að hún tekur þau öll upp sjálf og fær mikla aðstoð frá aðstoðarmanni sínum. Video-in eru tekin upp heima hjá henni þegar hún á lausa stund. Auk þess að taka upp video fyrir heimasíðuna sína þá gerir hún líka makeup video fyrir tískuhúsið Chanel.

Hér sjáið þið nýjustu forsíðuna hennar Lisu – hún farðaði Kate Winslet fyrir forsíðu breska Harper’s Bazaar.

Þó mín séu ekki í sama gæðaflokki og hennar ennþá þá stefni ég í þann flokk og helst hærra;)

#trendnike

Skrifa Innlegg

Skilaboð 1

  1. Gerður

    7. March 2013

    Hún er í algjöru uppáhaldi, hef lært mikið af henni :)