Allar farðanir virðast klæða þessa gullfallegu stelpu – þetta lúkk sameinar 2 af helstu makeup trendum sumarsins – litaður eyeliner og áberandi mattar varir.Svona náið þið lúkkinu:
- Fallegur léttur farði sem gefur húðinni smá glans um leið.
- Smá sólarpúður undir kinnbeinin til að ýta þeim upp.
- Bleikur púður kinnalitur á epli kinnanna.
- Ljós aungkuggi yfir allt augnlokið og í augnkrókana. Skyggið globuslínuna með möttum brúnum augnskugga og setjið létt af sanseruðum kopartóna augnskugga meðfram neðri augnhárunum og yfir ytri helmings augnloksins.
- Setjið 2 umferðir af góðum þykkingamaskara sem greiðir vel úr augnhárunum – passið að láta maskarann ekki þorna á milli umferða.
- Bjartur varalitur – þið getið notað hvaða varalit sem er og ef þið viljið fá matta áferð þá farið þið eftir ráði #1 HÉR
Fullkomið lúkk fyrir kvöldið ef þið hættið ykkur útí íslenska veðrið!
EH
Skrifa Innlegg